Spurning

Lissabon-sáttmálinn

Spyrjandi

Evrópuvefur

Svar

(Lisbon Treaty) tók gildi árið 2009 eftir að Írar höfðu fellt hann árið 2008 en samþykkt hann síðan eftir breytingar. Sáttmálinn kom í stað stjórnarskrár sem Frakkar og Hollendingar felldu í þjóðaratkvæði árið 2005. Að formi til fjallar sáttmálinn um breytingar á Rómar- og Maastricht-sáttmálunum. Að efni til treystir hann innviði sambandsins og eykur áhrif leiðtogaráðs og Evrópuþings á kostnað framkvæmdastjórnar. Þá eflir hann sambandið verulega á sviði utanríkismála, leggur grunninn að sameiginlegri utanríkisþjónustu ESB og innleiðir embætti utanríkismálastjóra, í stað talsmanns í utanríkis- og öryggismálum.

Um þessa spurningu

Dagsetning

Útgáfudagur23.6.2011

Tilvísun

Evrópuvefur. „Lissabon-sáttmálinn“. Evrópuvefurinn 23.6.2011. http://evropuvefur.is/svar.php?id=60032. (Skoðað 21.11.2024).

Höfundur

Evrópuvefur

Við þetta svar er engin athugasemd Fela