Spurning
Kola- og stálbandalag Evrópu
Spyrjandi
Evrópuvefur
Svar
Kola- og stálbandalag Evrópu (European Coal and Steel Community, ECSC) var stofnað árið 1952 og lagði grunninn að samrunaþróuninni í Evrópu. Aðilar voru í byrjun Þjóðverjar, Frakkar, Ítalir og Beneluxþjóðirnar, sömu þjóðir og stofnuðu Efnahagsbandalag Evrópu og Kjarnorkubandalagið fimm árum síðar. Þetta var tollabandalag um vörur sem skipta miklu í hernaði enda var mönnum á þessum tíma annt um að koma í veg fyrir fleiri styrjaldir milli aðildarþjóðanna. Samningurinn um bandalagið rann út árið 2002.Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur23.6.2011
Flokkun:
Tilvísun
Evrópuvefur. „Kola- og stálbandalag Evrópu“. Evrópuvefurinn 23.6.2011. http://evropuvefur.is/svar.php?id=60076. (Skoðað 23.11.2024).
Höfundur
Prenta
Senda
Frekara lesefni á Evrópuvefnum:
Við þetta svar er engin athugasemd
Fela